Hlutastarf við skólann

8.8.2016

  • Grunnskóli Bolungarvíkur

Starfið felst í umsjón með heilsdagsskólanum.

Finnst þér gaman að vinna með börnum, ertu ábyrg/ur með gott tímaskyn og skipulagshæfileika? 

Ef svo er leitum við að hressum einstakling til þess að sjá um heilsdagsskólann hjá okkur í Grunnskólanum í Bolungarvík. 

Heildagsskólinn er lengd viðvera yngstu skólabarnanna (1.-4.bekk). Vinnutíminn er alla daga frá kl. 12:30–16:30. 

Starfið felur í sér umsjón, skipulag og frágang, samstarf við íþróttafélögin og tónlistarskólann. 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Áhugi að starfa með börnum
  • Gott vald á íslenskri tungu
  • Framúrskarandi hæfi í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og leiðtogahæfni
  • Hreint sakavottorð 

Nánari upplýsingar er að fá hjá Stefaniu Ásmundsdóttir, skólastjóra, í síma 456-7249 eða stefania@bolungarvik.is.