„Húfudagurinn“

9.2.2017

  • Einelti-hudur1
  • Eintlei-hufur

Í dag var „Húfudagurinn“ í 1. bekk Grunnskóla Bolungarvíkur haldinn hátíðlegur. 

Í dag var „Húfudagurinn“ í 1. bekk Grunnskóla Bolungarvíkur haldinn hátíðlegur. 

Þetta er í þriðja sinn sem verkefnið Húfur gegn einelti er unnið í 1. bekk. 

Hugmyndina átti Ragnheiður I. Ragnarsdóttir, en hún prjónaði allar húfurnar fyrsta árið. Í ár eins og í fyrra var leitað til samfélagsins og óskað eftir fólki til að prjóna húfur á allan hópinn. Viðtökur við þeirri ósk voru framar vonum og allir nemendur 1. bekkjar fengu húfur við hátíðlega athöfn í dag. Fá allir prjónarar kærar þakkir fyrir verkið.

Nemendur í 1. bekk hafa unnið fjölbreytt verkefni tengd vináttu, virðingu, hrósi og umburðarlyndi. Hefur sú vinna gengið vel og vonandi að allir nái að tileinka sér þessi gildi.