Opið hús í menntaskólanum

10.3.2016

  • Menntaskólinn á Ísafirði

Föstudaginn 4. mars hófst innritunartímabil nýnema í framhaldsskóla fyrir haustönn 2016. 

Föstudaginn 4. mars hófst innritunartímabil nýnema í framhaldsskóla fyrir haustönn 2016. 

Af því tilefni verður opið hús í Menntaskólanum á Ísafirði í dag, fimmtudaginn 10. mars, frá kl. 17.30 til kl. 19. 

Markmið opna hússins er að kynna starfsemi skólans fyrir nemendum í 10. bekk á norðanverðum Vestfjörðum og forráðamönnum þeirra. Sérstök áhersla verður lögð á að kynna verknámsframboð skólans og geta gestir skoðað verknámsaðstöðu þar sem kennarar og nemendur munu taka á móti þeim og ýmis verkefni verða í gangi. Bóknámskennarar verða í bóknámshúsi og segja frá áherslum í bóknámi. 

Einnig mun námsráðgjafi veita upplýsingar um nýjar námsbrautir og inntökuskilyrði í skólann. 

Nemendur verða á staðnum og kynna félagslífið og boðið verður upp á leiðsögn um húsakynni skólans, kl. 18 og 18.30. Gestir á opnu húsi fá tækifæri til að spreyta sig í ratleik og eru vegleg verðlaun í boði.

Starfsmenn og nemendur Menntaskólans á Ísafirði hlakka til að sjá foreldra og börn á opnu húsi í skólanum fimmtudaginn 10. mars.