Öryggi barna í bíl

20.5.2016

Rafrænn bæklingur um öryggi barna í bíl.

Ágætu foreldrar / forráðamenn Okkur langar til að benda ykkur á góðan og vandaðan rafrænan bækling um öryggi barna í bíl sem Samgöngustofa hefur nýlega gefið út. Eins og nafnið gefur til kynna má finna í honum leiðbeiningar til að tryggja sem best öryggi barna í bílferðum, hvaða bílstóll hentar hvaða aldri, um Isofix - festingar og fleiri hagnýtar upplýsingar sem varða þetta mikilvæga málefni.  Bæklinginn má skoða hér. Um leið hvetjum við ykkur til að nýta virkan ferðamáta sem oftast á leið til og frá skóla. 

Fyrir hönd  
Grunnskóla Bolungarvíkur
Stefanía Ásmundsdóttir