Í skólann fyrir eigin orku

8.9.2023

  • 20230908_154630

Bíllaus vika 11.-15. september

Við hvetjum nemendur okkar og starfsfólk að koma fyrir eigin afli í skólann, þ.e. gangandi eða hjólandi. Við gerum þetta auðvitað að smá keppni en haldið verður utan um hverjir taka þátt en 1 stig fæst fyrir að koma fyrir eigin afli í skólann og 1 stig að fara heim fyrir eigin afli. Viðurkenning og óvæntur glaðningur er fyrir þann bekk sem hlýtur flest stig eftir vikuna. 

Virkjum eigin orku og afl!