Opinn skóli

13.11.2019

  • Image001

Opinn skóli.

Föstudaginn 15. nóvember frá kl. 11:15 og fram að hádegi verður grunnskólinn opinn fyrir gesti. Þennan dag, kynna nemendur skólans viðfangsefni sín út frá þemanu um „Norræn goðafræði“, en þemadagar standa yfir þessa vikuna. Foreldrar, ömmur, afar, frænkur, frændur og aðrir áhugasamir íbúar Bolungarvíkur eru hvattir til að líta við og kynnast goðafræðinni út frá sjónarhorni nemendanna.