Skólasetning Grunnskóla Bolungarvíkur

17.8.2023

Skólasetning Grunnskólans fer fram klukkan 9:00 þriðjudaginn 22. ágúst

Skólasetning Grunnskóla Bolungarvíkur fer fram á sal skólans þriðjudaginn 22. ágúst kl. 09:00. Eftir skólasetningu hefst skólinn og fara nemendur í sínar stofur.

Hafragrautur verður ekki í boði en súpa verður fyrir alla klukkan 12:30 þegar skóladegi lýkur.

Dægradvöl verður lokuð þriðjudaginn 22. ágúst en opnar miðvikudaginn 23. ágúst.

Hægt er að skrá nemendur í dægradvöl og mötuneyti á heimasíðu skólans.

Foreldrar eru velkomnir á skólasetningu.