Lestrarljósin
Unnið verður að betrumbætum á læsisstefnu Grunnskóla Bolungarvíkur í framhaldi af vinnu að skólastefnu sveitarfélagsins. Þangað til verður stuðst við lestrarljósin sem voru uppfærð á haustdögum.
Lestrarljósin
Stefna Grunnskóla Bolungarvíkur í læsi er að ná viðmiðum Menntamálastofnunar (mms).
Í skólanum tölum við um lestrarljósin , rautt,
gult og grænt.
Nemandi
sem eru undir 90% viðmiði telst vera á rauðu ljósi, nemandi sem er á milli 90%
og 50% telst vera á gulu ljósi og nemandi sem náð hefur 50 % telst vera á grænu
ljósi.
Þegar
nemadi hefur tekið lestrarpróf er hann staðsettur á grænu, gulu eða rauðu
ljósi. Skólafólk, nemandi og foreldrar taka höndum saman um að framfylgja þeim
leiðbeiningum sem fylgja hverju ljósi.
Í öllum bekkjum skal:
- Lesa upphátt í skóla helst daglega
- Heimalestur upphátt a.m.k. 5 daga vikunnar, 15 mínútur í senn
- Lestur fær rými í stundatöflunni, lestrarmenning
- Lestrarvænt umhverfi, bækur inn í skólastofu, gott aðgengi að bókasafni
- Tekið lestrarpróf átta sinnum yfir veturinn (þrjú MMS + fimm)
- Yngsta stig: öll próf
- Miðstig: Þeir
sem náð hafa viðmiði 2 í mms prófi sleppa næsta skólaprófi sem er í
röðinni. Aðrir taka öll próf þar til viðmiði 2 er náð - Unglingastig: Allir taka
próf í upphafi skólaárs. Þeir sem náð hafa viðmiði 2
fara eingöngu í mms próf yfir skólaárið. Aðrir fara í öll próf þar til viðmiði 2 er náð
Fyrirhugað er að leggja lestarpróf fyrir sem hér segir:
- Byrjun skólaárs
- 14. - 17. október
- 9. - 13. desember
- 17. - 21. febrúar
- 30. mars – 3. apríl
Lesfimipróf frá Menntamálastofnun (mms) verða lögð fyrir í september, janúar og maí.
Lestrarfyrirmyndir eru foreldrar, kennarar og annað starfsfólk skólans.
Yfirfarið október 2022