Stoðþjónusta

Stoðþjónusta

Samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 91/2008 á skólinn „að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins.“ Í reglugerð um nemendur með sérþarfir nr. 585/2010 er áréttað að allir nemendur eigi að fá „jöfn tækifæri á eigin forsendum til náms og virkrar þátttöku í grunnskólum án aðgreiningar þannig að komið sé til móts við náms-, líkams-, félags- og tilfinningalegar þarfir þeirra.“ Skóli án aðgreiningar er byggður hugmyndum um jafnræði og réttlæti en ekki á því að allir séu á sama stað á sama tíma að gera það sama. Stundum hentar nemanda að vera með samnemendum í bekknum að vinna verkefni, stundum hentar að fara annað í minni hóp. Stutt er við kennara og búið til lærdómsumhverfi þar sem sérkennarar og kennarar nýta og deila betur þekkingu sinni sín á milli með hæfni nemandans að leiðarljósi.

Í grunnskólanum er veitt eftirfarandi stoðþjónusta:

Ásgarður, skólaþjónusta

Félagsráðgjafi

Málstjóri í þágu farsældar barna

Námsráðgjafi

Nemendaverndarráð

Sálfræðingur

Skólahjúkrunarfræðingur

Talmeinafræðingur

Þroskaþjálfi

Yfirfarið ágúst 2024