Farsæld barna

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gidli 1. janúar 2022. Lögin horfa til þess að öll börn og foreldrar fái rétta þjónustu, frá réttum aðilum á réttum tíma og geta óskað eftir samþættingu þjánustu í þágu farsældar barna. Á vefnum Farsæld barna er kynning á lykilhugtökum sem koma fram í lögunum um farsæld. 

Stigskipting þjónustu við börn

Þjónustu við börn er skipt í stig eftir því hversu mikil þjónustuþörfin er. Hafa ber í huga að barn getur fengið þjónustu á fleiri en einu stigi hverju sinni. Þjónustunni er skipt í þrjú stig. Á fyrsta stigi heldur tengiliður utan um mál barns, en barn sem hefur mikla þjónustuþörf og fær þjónustu a´öðru eða þriðja stigi tekur málstjóri við hlutverki tengiliðar. 

Tengiliður farsældar

Tengiliður skólans er Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir, gudbjorg@bolungarvik.is  

Hlutverk tengiliðar farsældar er:
að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi.
að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn.
að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns.
að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.
að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra.
að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.

Málstjóri farsældar

Málstjóri farsældar barna er Sigríður Hulda Guðbjörnsdóttir, siggahulda@bolungarvik.is 

Hlutverk málstjóra farsældar er að: 

að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi.
að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn.
að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns.
að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.
að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra.
að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.

Þjónusta Bolungarvíkurkaupstaðar

Hægt er að finna ítarlegri upplýsingar um farsæld barna og þjónustu Bolungarvíkurkaupstaðar á heimasíðu bæjarins undir velferðaþjónustu: Farsæld barna og Félagsþjónusta