Alþjóðlegi Downs dagurinn

  • 21.3.2023

Sameinuðu þjóðirnar lýstu því formlega yfir árið 2011 að 21. mars væri alþjóðadagur Downs-heilkennis. Dagsetningin er táknræn að því leiti að hún vísar til þess að Downs-heilkenni er orsakað af auka litning í litningi 21, þ.e. 3 eintök af litning 21 - 21.03.

Við hvetjum starfsfólk og nemendur skólans til þess að mæta í sitthvorum sokknum að því tilefni og fagna margbreytileikanum.