Skil á milli stiga
Dagana 13.-15. apríl munu nemendur á Mölum, 4. bekk og 7. bekk kynnast því að fara á nýtt stig innan skólans. Eins munu verðandi nemendur skólans sem koma til okkar á Malir úr leikskólanum Glaðheimum vera í heimsókn hjá okkur þessa daga.
Nemendur á Mölum fara upp á yngstastigs gang og hitta þar Jónu Guðmundu þegar nemendur 4. bekkjar fara á miðstig og hitta þar Auði Hönnu þar sem 7. bekkur fer upp á unglingastig og verður með 8. bekk. Nemendur ganga inn í stundatöflu þeirra bekkja sem þeir tilheyra, þ.e. Malir ganga inn í stundatöflu 4. bekkjar, 4. bekkur gengur inn í stundatöflu 7. bekkjar og 7. bekkur gengur inn í stundatöflu 8. bekkjar.
Umsjónarkennarar munu senda frekari upplýsingar um skipulag daganna þegar nær dregur.
