Sumarskóli

  • 5.6.2025 - 27.6.2025

Nemendur í 1. og 2. bekk geta verið í vistun alla daga frá kl. 8:00-12:00, nemendur á Mölum geta verið í vistun frá kl. 8:00 - 16:00 mánudaga til fimmtudaga en frá kl. 8:00 til kl. 12:00 á föstudögum.

Gengið verður inn um anddyri Mala, við sundlaugarplanið, og starfið fer fram í rými dægradvalar og á Mölum. Mikilvægt er að nemendur komi klæddir eftir veðri alla daga.

Skipulögð dagskrá fyrir hádegi en eftir hádegi verður almenn gæsla fyrir nemendur á Mölum. Útivera fléttast töluvert inn í starfið. 

Ávextir verða í boði bæði fyrir og eftir hádegi en að öðru leyti þurfa nemendur að koma með nesti fyrir daginn.

Hægt er að ná í starfsmenn sumarskólans í síma 8937128. Mikilvægt er að láta starfsmenn vita um fjarveru og eða veikindi nemenda.

Starfsmenn sumarskólans verða: Karitas, Aron Ívar, Gabriel, Guðmundur Páll og Sævar ásamt krökkum úr vinnuskólanum.

Við hlökkum til samstarfsins, ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband við Guðbjörgu Stefaníu, gudbjorg@bolungarvik.is