Sumarskóli

  • 9.6.2026 - 30.6.2026


Skipulag sumarskólans samanstendur af skipulagðri dagskrá fyrir hádegi en eftir hádegi verður almenn gæsla fyrir nemendur á Mölum. Útivera fléttast töluvert inn í starfið alla daga og því mikilvægt að nemendur komi klæddir eftir veðri. Farið verður meðal annars í fjöru- og gönguferðir ásamt fjallgöngum, íþróttastundum í íþróttasalnum og sundferðum svo það ætti engum að leiðast.


Nemendur í 1. og 2. bekk geta verið í vistun alla daga frá kl. 8:00-12:00, nemendur á Mölum geta verið í vistun frá kl. 8:00 - 16:00 mánudaga til fimmtudaga en frá kl. 8:00 til kl. 12:00 á föstudögum.


Starfsmenn sumarskólans verða: Karitas, Vendy og Margrét. Auk þess verða Sævar, Gabriel og Súla með sína skjólstæðinga. Vonandi fáum við svo nokkra spræka krakka úr vinnuskólanum.
Vinsamlegast skráið börnin í vistun fyrir 29. mai. Lágmarksvistun er ein vika - gjaldskrá leikskólans gildir fyrir þennan tíma ( gjald rukkast fyrir vistun eftir kl. 14).