Dægradvöl

Umsókn skoðast sem samningur um vist í dægradvöl og breyting á viðverutíma eða uppsögn á samningnum verður að tilkynna til ritara skólans í síma 456-7249 eða á netfangið bolungur@bolungarvik.is fyrir 20. næsta mánaðar á undan. Sé það ekki gert framlengist hann óbreyttur til næsta mánaðar og fæst ekki breytt.

Fyrir vistun í dægradvöl er greitt samkvæmt gjaldskrá sem bæjaryfirvöld ákveða og fer innheimta í gegnum greiðslukerfi bæjarins.

Gjaldskrá heilsdagsskóla Grunnskóla Bolungarvíkur

Gjaldskrá heilsdagsskóla Grunnskóla Bolungarvíkur frá 1. janúar 2023.

Heilsdagsvistun í Grunnskóla Bolungarvíkur

 EiningKrónur 
 Tímagjald gæslu 361
 Síðdegishressing hvert skipti 45

Afsláttur fyrir einstæða foreldra og námsmenn

Einstæðir foreldrar og námsmenn, ef báðir foreldrar eru í viðurkenndu námi, er veittur 35% afsláttur af tímagjaldi. Afslátturinn nær til fyrsta barns. 

Systkinaafsláttur

Systkinaafsláttur er 35% fyrir annað barn og gjaldfrjálst fyrir þriðja barn. Afslátturinn
er samtengdur milli daggæslu í heimahúsi, leikskóla og heilsdagsskóla. Þannig að
yngsta barn greiði fullt grunngjald, 35% afsláttur af grunngjaldi fyrir annað barn og
ekkert grunngjald fyrir þriðja barn.

Uppsögn dagvistar í heilsdagsskóla

Segja þarf upp vistun með mánaða fyrirvara.

Yfirfarið í febrúar 2023