Nemendafélag Grunnskóla Bolungarvíkur

Í lögum um grunnskóla er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun nemendafélags við skólann. Nemendafélagið vinnur m.a. að félags- og velferðar málum nemenda og skal skólastjóri sjá til þess að félagið fái aðstöðu eftir þörfum. Nemendafélagið setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosning fulltrúa í skólaráð. 

Nemendaráð er kosið árlega af nemendum í 8., 9. og 10. bekk.

Starfsreglur nemendafélags Grunnskóla Bolungarvíkur

1. gr. Félagið heitir Nemendafélag Grunnskóla Bolungarvíkur, skammstafað N.G.B.

2. gr. Tilgangur N.G.B. er að efla félagslegan áhuga nemenda, stuðla að félagsstarfi í skólanum og standa vörð um hagsmuni og velferð allra nemenda skólans.

3. gr. Í upphafi hvers skólaárs er kosið í nemendaráð sem gegnir jafnframt hlutverki stjórnar N.G.B. út skólaárið. Í nemendaráði skulu sitja 5-7 fulltrúar. Úr 9. og 10. bekk koma tveir til þrír fulltrúar og úr 8. bekk einn fulltrúi. Kosning fulltrúa í nemendaráði skal fara þannig fram að auglýst er eftir framboðum úr hverjum bekk og að liðnum framboðsfresti er síðan útbúinn kjörseðill sem nemendur merkja við.

4. gr. Sá nemandi úr 10. bekk sem hlýtur fleiri atkvæði verður formaður ráðsins, hinn fulltrúinn verður varaformaður. Ráðið sjálft skipar ritara og gjaldkera ( ef þörf er á) auk meðstjórnenda. Nemendaráðið tilnefnir tvo fulltrúa úr sínum hóp til setu í skólaráði.

5. gr. Allir nemendur á unglingastigi eru félagar í N.G.B. Nemendaráð, fyrir hönd félagsins getur staðið fyrir atburðum og uppákomum í samráði við félagsmiðstöðina. Fjáraflanir á vegum félagsins renna í ferðasjóð nemenda.

6. gr. Nemendaráð er tengiliður nemenda við skólayfirvöld og hefur yfirumsjón með félagsstarfi við skólann. Nemendur geta snúið sér til fulltrúa í nemendaráði til að koma málum á framfæri við skólastjórnendur eða skólaráð.

7. gr. Nemendaráð getur stofnsett nefndir til að annast ákveðin verkefni t.d. skipulagsráð félagsmiðstöðvarinnar, árshátíðarnefnd, íþróttaráð og sjoppunefnd. Nemendaráð tilnefnir formenn nefnda og velur fulltrúa í þær í samráði við nefndarformenn.

8. gr. Nemendaráð kemur að jafnaði saman til fundar einu sinni í mánuði. Fulltrúar bera upp mál til umfjöllunar. Einfaldur meirihluti nægir til þess að samþykkja mál innan nemendaráðs.

Ágúst 2026