Tómstundarstarf barna og ungmenna

Hanna Þórey Björnsdóttir er tómstundarfulltrúi Bolungarvíkurkaupstaðar, netfang:  hannabj@bolungarvik.is


Tómstundafulltrúi Bolungarvíkurkaupstaðar hefur umsjón með félagsmiðstöðinni Tópaz og kemur að skipulagningu og þróun starfseminnar í samvinnu við nemendaráð skólans .

Félagsmiðstöðin Tópaz

Tópaz er opin þrjú kvöld í viku fyrir nemendur í 8.–10. bekk. Þar er boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem áhersla er lögð á að skapa skemmtilegt, öruggt og jákvætt umhverfi fyrir ungmennin.Starfsemin felur meðal annars í sér:
  • fjölbreytt félags- og tómstundastarf
  • skipulagningu ferða og viðburða
  • samstarf við nemendaráð
  • þátttöku ungmenna í skipulagningu og mótun starfseminnar
  • þróun og eflingu félagsmiðstöðvarinnar
Markmiðið er að skapa fjölbreytt tækifæri fyrir börn og ungmenni til þátttöku, samveru og félagsstarfs og stuðla að virkni, félagslegum tengslum og vellíðan þeirra.

Sértækt hópastarf

Tómstundafulltrúi kemur einnig að sértæku hópastarfi í samstarfi við félagsþjónustu Bolungarvíkur. Þar er unnið með börnum og ungmennum sem þurfa aukinn stuðning við félagslega þátttöku og virkni.Áhersla er lögð á að skapa öruggt og uppbyggilegt umhverfi þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla félagsfærni, tengsl og þátttöku í samfélaginu.Unnið er að áframhaldandi þróun hópastarfsins með það að markmiði að nýta það sem hluta af snemmtækri íhlutun fyrir yngri börn í grunnskóla.
Markmið tómstundastarfsTómstundastarf fyrir börn og ungmenni í Bolungarvík hefur það að markmiði að:
  • efla félagslega þátttöku og virkni
  • skapa tækifæri til samveru og jákvæðra samskipta
  • stuðla að vellíðan og öryggi barna og ungmenna
  • mæta ólíkum áhugamálum, þörfum og styrkleikum
  • veita börnum og ungmennum tækifæri til að hafa áhrif á sitt eigið tómstundastarf.


Yfirfarið ágúst 2026