Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur

14.2.2023

  • Auglysing_2023

Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur fer fram fimmtudaginn 16. febrúar í Félagsheimilinu. Selt verður inn við innganginn, miðaverð 1000 krónur.  

Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur fer fram fimmtudaginn 16. febrúar í Félagsheimilinu. Eins og fyrri ár verður árshátíðin öllum opin, og verða tvær sýningar.
Fyrri sýningin hefst kl. 17.00 og sú seinni kl. 20:00, húsið opnar 30 mínútum fyrir sýningu. Á báðum sýningum sýna allir árgangar leik- og söngatriði, unglingastigið sýnir leikritið Ávaxtakörfuna.
Selt verður inn við innganginn, miðaverð 1000 krónur. Hægt verður að greiða með korti í anddyri og pening innar í rýminu.
Ekkert hlé verður á sýningunni og engin veitingasala.