Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur
Fimmtudaginn 12. febrúar, tvær sýningar klukkan 16:30 og 19:30
Árshátíð Grunnskóla
Bolungarvíkur verður fimmtudaginn 12. febrúar í Félagsheimili Bolungarvíkur. Eins og fyrri ár er árshátíðin öllum opin og verða
tvær sýningar.
Fyrri sýningin hefst kl. 16:30 og sú seinni kl. 19:30,
húsið opnar 30 mínútum fyrir sýningu.
Á báðum sýningum sýna árgangar skólans leik- og söngatriði, unglingastigið sýnir leikritið Matilda.
Selt verður inn við innganginn, miðaverð er 1000 krónur. Nemendur leik- og grunnskóla Bolungarvíkur borga ekki inn á hátíðina. Hægt verður að greiða með korti í anddyri og pening innar í rýminu.
Ekkert hlé verður á sýningunni og engin veitingasala.
ATH: dægradvöl lokar kl. 14.20 þennan dag, fimmtudaginn 12. febrúar
Venjulegur skóladagur, samkvæmt stundatöflu, verður föstudaginn 13. febrúar.

