Blak
Nemendum 5.-6. bekkjar var boðið í blak
Blaksamband Íslands hefur staðið fyrir skólablaki þar sem sambandið kynnir nemendum grunnskóla fyrir blakíþróttinni. Nemendur 5. og 6. bekkjar Grunnskóla Bolungarvíkur fóru í íþróttahúsið á Torfnesi á Ísafirði í morgun þar sem þeir spiluðu blak með jafnöldrum sínum úr grunnskólum Ísafjarðarbæjar. Mikil gleði var með viðburðinn og voru nemendur skólanum til sóma.