Bleikur dagur

20.10.2026

  • Designer

21. október

Miðvikudaginn 21. október verður Bleikur dagur í Grunnskóla Bolungarvíkur. Af því tilefni eru nemendur og starfsfólk hvött til að mæta í einhverju bleiku eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi með þeim hætti sem hentar hverjum og einum.

Bleiki dagurinn er hluti af árlegu átaki Krabbameinsfélags Íslands, Bleiku slaufunni, sem er tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Á þessum degi er landsmenn hvattir til að klæðast bleiku og sýna samstöðu og stuðning við þær konur sem hafa greinst með krabbamein. 

Það þarf ekki mikið til að taka þátt. Bleik peysa, bleikur trefill, hárteygja, sokkar eða annar bleikur litur getur sett skemmtilegan svip á daginn og sýnt stuðning í verki.

Við hlökkum til að sjá mannauð skólans skarta bleikum lit.