Click safe
Sjö manna hópur frá skólanum er staddur í Rúmeníu
Markmið verkefnisins að auka skilning á hugtakinu stafræn fótspor og áhættur á netinu s.s. neteinelti og óviðeigandi efni. Haldnar verða vinnu- og málstofur til að auka skilning á netnotkun og öryggi ásamt því að kynna hagnýt námsforrit. Með þátttöku í verkefninu er horft til þess að þátttakendur auki og sýni ábyrga hegðun á netinu og stafrænum miðlum. Fyrr í vetur fór hópur frá skólanum til Tyrklands og vann meðal annars þá "Click save" mynd sem fylgir fréttinni.
Þessa vikuna er fimm nemendur úr 9. og 10. bekk ásamt tveimur kennurum í bænum Rășinari í Rúmeníu þar sem þeir taka þátt í vinnustofum og kennslu ásamt að fara í vettvangs- og skoðunarferðir.
Hér að neðan má sjá mynd af nemendum skólans hefja kynningu sína á Íslandi, Bolungarvík og skólanum.

