Click save
Hópur fór til Fiorenzuola á Ítalíu
Grunnskóli Bolungarvíkur tekur þátt í Erasmusverkefninu “Click Safe” ásamt skólum frá Tyrklandi, Rúmeníu og Ítalíu.
Markmið verkefnisins að auka skilning á hugtakinu stafræn fótspor og áhættur á netinu s.s. neteinelti og óviðeigandi efni. Haldnar verða vinnu- og málstofur til að auka skilning á netnotkun og öryggi ásamt því að kynna hagnýt námsforrit. Með þátttöku í verkefninu er horft til þess að þátttakendur auki og sýni ábyrga hegðun á netinu og stafrænum miðlum.
Dagana 20.-26. september fór sjö manna hópur frá skólanum, 5 nemendur og 2 starfsmenn, til Fiorenzuola á Ítalíu. Nemendurnir sem fóru í ferðinna skrifuðu ferðasögu sem birtist hér með.
-Dagur 1-
Við lentum á flugvellinum í Mílan um 5 leitið og tókum lest frá flugvellinum til aðal lestarstöðvarinnar í Mílan, þaðan tókum við lest til Fiorenzuola. Þar beið okkur ítalski kennarinn og hún sá um að skutla okkur á hótelið okkar. Við heimsóttum pítsustað sem hún mælti með. Okkur fannst þessi staður vera mjög óþægilegur vegna reykingar lyktarinnar, annars var pítsan mjög góð.

-Dagur 2-
Við byrjuðum daginn á að fara í göngutúr um miðbæinn í Fiorenzuola. Um kringum hádegi komu fjölskyldunar og sóttu okkur. Um kvöldið áttum við stund með þeim

-Dagur 3-
Um morguninn vöknuðum við og fórum í skólann, þar voru kynningar um skóla og bæina sem krakkarnir komu frá og tókum þátt í mjög áhrifa verðum verkefnum. Seinni partinn tókum við lest frá Fiorenzuola til Piacenza. Þar tókum við smá sýnistúr af kirkjunni og sögulegum byggingum.


-Dagur 4-
Við vöknuðum snemma, tókum lest til aðal lestarstöðvarinnar í Mílan. Þaðan tókum við neðanjarðarlestar upp að frægu dómkirkjunni í Mílan. Eftir frítímann fórum við á safn sem var byggt inn í kastala, þar skoðuðum við fræg málverk, sögulegar styttur og húsgögn sem komu frá öðrum kynslóðum.
-Dagur 5-
Um morguninn vöknuðum við og fórum í skólann, þar hlustuðum við á kynningu frá fyrrverandi nemanda skólans, eftir það gerðum við verkefni sem enginn skyldi. Verkefnið snerist samt um að gera aðgengilegt efni sem verður sett á heimasíðu verkefnisins. Um kvöldið var stund með fjölskyldum. Margir fóru út í hópum.

-Dagur 6-
Við tókum lest um morguninn til Parma, þar fórum við í selfie treasure hunt / sjálfsmynda ratleikur. Það virkaði þannig að við þurfum að koma okkur á staði og taka taka selfie/sjálfsmynd af hópnum. Eftir þennan leik fórum við öll saman í garð og lékum okkur þangað til lestin okkar fór til baka til Fiorenzuola.


