Dagatal Grunnskóla Bolungarvíkur

16.1.2026

  • Hopur_unglingastig

Jafnréttis- og sköpunarlota

Í jafnréttis- og sköpunarlotu haustsins var unnið að útgáfu dagatals sem gefið er út í desember og borið út á öll heimili í Bolungarvík. Útgáfan er orðinn árviss viðburður og hefur almennt fengið jákvæð viðbrögð. Nemendum, sem sjá að mestu um alla vinnu og skipulag er varðar útgáfuna, var skipt í 12 hópa sem voru blandaðir á milli bekkja. Öllum hópum var úthlutað mánuði sem þeir skipulögðu og hönnuðu ásamt því að hringja í fyrirtæki að selja auglýsingar á dagatalið. Allir nemendur unglingastigs sinntu úthringingum og fóru margir út fyrir sinn þægindaramma sem ber að fagna og hrósa fyrir. 

Vinna sem þessi krefst mikillar samvinnu þar sem nemendur þurfa að vera samstíga og sýna mikla hæfni t.d. í mannlegum samskiptum, hönnun, leiðtogafærni og svo lengi mætti telja.