Dagur íslenskrar tungu
"Íslenskan er mikilvæg vegna þess að ..."
Í tilefni dagsins komu nemendur og starfsfólk skólans saman á sal þar sem dagskráin hófst með söng skólasöngsins og stuttu ávarpi um mikilvægi móðurmálsins okkar.
Frá hverju stigi skólans voru flutt fjölbreytt og skemmtileg atriði sem vörpuðu ljósi á mikilvægi íslenskrar tungu. Í lok samverunnar sameinuðust allir í söng og sungu lagið Hafið eða fjöllin eftir Ólaf Ragnarsson (Óla Popp), sem setti hlýjan og hátíðlegan svip á stundina.
Í tilefni dagsins unnu nemendur einnig sameiginlegt verkefni þvert á skólann undir yfirskriftinni:
„Íslenskan er mikilvæg vegna þess að …“
Markmið verkefnisins var að hvetja nemendur til að velta fyrir sér mikilvægi íslenskunnar, hlutverki hennar í daglegu lífi og tengslum hennar við menningu, sögu og sjálfsmynd þjóðarinnar. Nemendur ræddu saman í bekkjunum og luku setningunni „Íslenskan er mikilvæg vegna þess að …“ út frá eigin hugmyndum, reynslu og sýn á tungumálið. Svör þeirra voru síðan skráð á púsluspilsbúta og sett saman við önnur púsluspil sem síðan mynduðu sameiginlegt listaverk sem endurspeglar fjölbreyttar hugmyndir nemenda um gildi íslenskunnar.
Dagur íslenskrar tungu fellur vel að yfirstandandi læsilotu skólans. Læsi er einn af grunnþáttum menntunar og nær til þess að skilja, tjá sig og eiga samskipti með tungumálinu. Með verkefnum dagsins fengu nemendur tækifæri til að efla orðaforða sinn, tjá skoðanir sínar og ígrunda mikilvægi íslenskunnar, sem styður jafnframt við markmið læsilotunnar og eflingu læsis í víðum skilningi.

