Endurmenntun starfsfólks

19.9.2026

  • 71ef3a57-c668-4144-b8e5-10626b7ffed4

Læsisráðstefna, UTÍS og þing

Nú í septembermánuði hefur starfsfólk skólans verið duglegt að sækja sér reynslu og endurmenntun með ýmsum leiðum. 
Grunnskólinn átti fulltrúa á "Læsi til náms og yndis" læsisrátstefnu sem haldin var á Akureyri 12. september. Þann sama dag var haustþing KSV (Kennarasambands Vestfjarða) haldið á Bíldudal sem margir kennarar skólans sóttu, aðrir starfsmenn sóttu námskeið á neti sem nýtast í starfi. 

18. og 19. september var UTÍS online haldið en UTÍS er menntaviðburður á neti fyrir kennara, stjórnendur og starfsfólk á öllum skólastigum.  Margt af starfsfólki skólans skráði sig á viðburðinn og komu nokkrir saman í skólanum við það tilefni. 

Námskeið, ráðstefnur og hinir ýmsu menntaviðburðir eru meðal annars mikilvæg í starfsþróun og endurmenntun sem eru lykilþættir í faglegu skólastarfi og mikilvægar stoðir í því að byggja upp öflugt og framsækið skólasamfélag. Í menntastefnu Bolungarvíkurkaupstaðar er lögð áhersla á að starfsfólk skóla hafi tækifæri til að efla hæfni sína, þróa starfshætti og vinna saman að stöðugum umbótum sem styðja við nám og vellíðan nemenda. Með öflugri starfsþróun tryggjum við að skólinn sé í takt við nýjustu faglegu viðmið, að kennsluhættir þróist í samræmi við þarfir nemenda og að starfsfólk hafi svigrúm til að vaxa í starfi. Þetta er grunnur að gæðastarfi skólans og styrkir Grunnskóla Bolungarvíkur sem framsækinn og faglegan vinnustað.