Endurskinsbakpokar að gjöf
Kvennadeild slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Bolungarvík færði nemendum 1. – 4. bekkjar Grunnskóla Bolungarvíkur endurskinsbakpoka að gjöf í dag. Með gjöf þessari er það von félagsins að gangandi börn verði sýnilegri í umferðinni á leið sinni til og frá skóla og tómstundum.
Takk fyrir Kvennadeild