Endurskinsmerki að gjöf fyrir alla nemendur

5.11.2026

  • 20261105_140824

Sjáumst!

Nemendur skólans fá nú fyrir helgi endurskinsmerki að gjöf frá Slysavarnardeildinni Ásgerði í Bolungarvík. Við kunnum deildinni bestu þakkir fyrir þessa kærkomnu gjöf sem stuðlar að auknu öryggi barna í umferðinni.

Þegar dimma tekur á haustin og veturna verður sýnileiki gangandi vegfarenda minni. Endurskinsmerki geta skipt sköpum og gert ökumönnum kleift að sjá gangandi vegfarendur mun fyrr. Því er mikilvægt að börn og fullorðnir noti endurskin þegar ferðast er utandyra í rökkri og myrkri.

Nemendum verða afhent merkin í skólanum og jafnframt rætt um mikilvægi þess að nota þau á réttan hátt. Best er að hafa endurskinsmerki á báðum hliðum líkamans, til dæmis á úlpum, töskum eða öðrum ytri fatnaði sem er sýnilegur úr sem flestum áttum.

Við hvetjum alla nemendur og fjölskyldur þeirra til að nýta sér endurskinsmerkin og leggja þannig sitt af mörkum til aukins umferðaröryggis í samfélaginu.

Við þökkum Slysavarnardeildinni Ásgerði kærlega fyrir gjöfina og umhyggjuna fyrir öryggi barna okkar.