Endurskinspokar
Kvennadeild slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Bolungarvík færði nemendum 1. bekkjar Grunnskóla Bolungarvíkur endurskinsbakpoka að gjöf í dag.
Er það von félagsins að gangandi börn verði sýnilegri í umferðinni á leið sinni til og frá skóla og tómstundum. Er þetta þriðja árið sem félagið færir nemendum poka að gjöf.