Endurskoðuð eineltisáætlun

14.4.2026

  • 20251009_105147

Við viljum ábendingar er varðar eineltisáætlun skólans

Grunnskóli Bolungarvíkur leggur ríka áherslu á markvissa og faglega vinnu gegn einelti og byggir þá vinnu á skýrri eineltisáætlun. Innan skólans starfar sérstakt eineltisteymi sem sinnir slíkum málum í samræmi við verklag áætlunarinnar, Aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla.

Á yfirstandandi skólaári hefur ein formleg tilkynning um einelti borist. Málið var tekið til ítarlegrar könnunar án tafar og án þess að nauðsynlegt reyndist að virkja allt eineltisteymið. Þannig tókst á ljúka málinu farsællega á skömmum tíma.

Sem liður í farsælu skólastarfi er nú tímabært að endurskoða eineltisáætlun skólans. Skólinn leggur áherslu á virkt samstarf við foreldra og telur mikilvægt að sjónarmið þeirra komi skýrt fram í þeirri vinnu.

Foreldrar eru nú hvattir til að kynna sér eineltisáætlunina og senda skólanum ábendingar, hugmyndir og álit á núverandi eineltisáætlun. Með sameiginlegu átaki getum við áfram stuðlað að öruggu, jákvæðu og uppbyggilegu skólasamfélagi fyrir alla nemendur með virku og kerfisbundnu verklagi við viðkvæm mál. Hér má finna eineltisáæltun skólans. Ábendingar berist til skólastjóra, halldora@bolungarvik.is