Evrópski tungumáladagurinn

28.9.2026

  • 20260928_095811

Tungumálaveggur

Markmið Evrópska tungumáladagsins, sem haldinn er 26. september um alla Evrópu, er að vekja athygli á ríkulegum tungumála- og menningarlegum fjölbreytileika álfunnar og hvetja til að bæta úrval tungumála sem fólk lærir á lífsleiðinni. Aukin tungumálakunnátta veitir okkur betri innsýn inn í ólíka menningarheima og bætir samfélagslega færni okkar. Evrópski tungumáladagurinn er tækifæri til að fagna öllum tungumálum Evrópu, bæði stórum og smáum.

Í tilefni dagsins var hverjum bekk skólans úthlutað einu tungumáli. Bekkirnir gerðu veggspjöld þar sem eftirfarandi kom fram: 

· Skrifa Halló á tungumálinu

· Skrifa eitt fallegt orð

· Skrifa tölurnar frá 1-5

· Skrifa fallega eina setningu

· Finna eða teikna fánann

· Teikna lýsandi mynd sem tengist landinu eða tungumálinu.

Veggspjöldunum var svo komið fyrir á vegg við matsal skólans. 

20260928_095746

20260928_095803

Evropski