Fræðsluerindi fyrir foreldra
Mánudaginn 10. september kl. 20
ætlar Sólveig Norðfjörð sálfræðingur að bjóða upp á fræðsluerindi fyrir foreldra 5 og 6 ára barna. Erindið sem verður um 60 mínútur að lengd, verður haldið í salnum á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði.
Á eftir erindinu verður gefinn tími fyrir spurningar og umræður. Ókeypis aðgangur.