Garnlitun
Nemendur á miðstigi kynntust sögu íslenskrar jurtalitunar
Guðrún Guðfinnsdóttir kennari á miðstigi var með garnlitun sem valgrein í læsislotu. Í valgreininni var farið yfir sögu íslenskrar jurtalitunar ásamt þróun og notkun litfesta.
Í tímunum fengu nemendur að prófa sig áfram við litun sem vakti mikla lukku og áhugahvöt þeirra á viðfangsefninu. Notast var við Álafosslopa og hann litaður með matarlit og edik var notað sem litfestir.
Nemendur fengu greinagóðar leiðbeiningar þar sem þeim var gert að skrá ferlið niður. Þegar búið var að lita lopann og hann tilbúinn til notkunar voru flestir sem gerðu vinabönd eða renninga og meira að segja tóku upp á því að prjóna.





