Góður árangur í úrslitum Pangea 2026

21.4.2026

  • Pangea

Ægir Gaukur í 13. sæti

Úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangea fór fram með pompi og prakt í Menntaskólanum í Hamrahlíð á laugardaginn. Fjöldi þátttakenda í ár var 4.694 og voru það tæplega 100 nemendur sem kepptu til úrslita. 

Fulltrúi Grunnskóla Bolungarvíkur, Ægir Gaukur Sigurðarson, varð í 13. sæti af keppendum í 8. bekk. Við óskum honum sérstaklega til hamingju með árangurinn.

Fleiri vestfirðingar tóku þátt í úrslitum keppninnar en Grunnskólinn á Ísafirði átti þar fulltrúa sem lentu í 2. sæti í 8. bekk og 13. sæti í 9. bekk.