Grænn dagur
Ég er verndari gegn einelti
Föstudaginn 6. nóvember tók Grunnskóli Bolungarvíkur þátt í Baráttudegi gegn einelti en alþjóðlegur dagur gegn einelti var sunnudaginn 8. nóvember. Nemendur og starfsfólk mættu í grænu til að sýna samstöðu gegn einelti og minna á mikilvægi þess að allir finni til öryggis, virðingar og vellíðanar í skólasamfélaginu.
Í tilefni dagsins útbjuggu nemendur og starfsfólk græn höfuðbönd og skrifuðu á þau slagorðið:
„Ég er verndari gegn einelti.“
Yfir daginn fóru fram umræður í bekkjum um hvað einelti er, hvernig megi koma í veg fyrir það og hversu mikilvægt það er að standa með og styðja hvert annað. Einnig var unnið með Kærleikslagið, sem minnir á mikilvægi vináttu, virðingar og þess að láta öllum líða vel. Með söng, umræðum og verkefnum fengu nemendur tækifæri til að velta fyrir sér hvernig orð okkar og gjörðir geta haft jákvæð áhrif á líðan annarra og hvernig við getum öll verið góðir félagar í skólasamfélaginu.
Dagurinn endaði með sameiginlegri myndatöku þar sem nemendur og starfsfólk komu saman til að sýna í verki samstöðu sína gegn einelti.
Baráttan gegn einelti er verkefni sem þarf að sinna alla daga ársins. Með virðingu, samkennd og ábyrgð í samskiptum getum við öll verið verndarar gegn einelti og stuðlað að jákvæðum skólabrag.

