Hænurnar fluttar í Glaðheima
Skemmtilegt verkefni sem átti upphaf sitt hjá nemendum
Undanfarin ár hafa hænurnar okkar og hænsnakofinn verið skemmtilegur og lærdómsríkur hluti af skólastarfi Grunnskóla Bolungarvíkur. Verkefnið átti upphaf sitt í hugmynd nemenda á nemendaþingi og var hænsnakofinn smíðaður af nemendum sem hluti af valnámi í smíðum. Síðar bættust hænurnar í hópinn og hafa þær verið í umsjón nemenda og starfsfólks skólans.
Nú hefur verið ákveðið að flytja hænsnakofann og hænurnar til leikskólans Glaðheima þar sem þær munu halda áfram að gleðja börn og starfsfólk. Þar fá yngstu nemendur skólasamfélagsins tækifæri til að kynnast hænunum, fylgjast með þeim og læra um umhirðu dýra og ábyrgð.
Við í Grunnskóla Bolungarvíkur erum þakklát fyrir þau fjölmörgu tækifæri og lærdómsstundir sem hænurnar hafa fært nemendum okkar og óskum hænunum og nýjum umsjónaraðilum þeirra alls hins besta í Glaðheimum.

