Haustfrí og veðurviðvörun

13.10.2026

  • Vedurkort

Haustfrí verður fimmtudaginn 15. og föstudaginn 16. október.

Haustfrí verður fimmtudaginn 15. og föstudaginn 16. október. Við vonum að fjölskyldur muni njóta samverunnar og eiga góðar stundir saman.

Samkvæmt veðurviðvörunum frá Veðurstofu Íslands er spáð mjög slæmu veðri á Vestfjörðum á morgun, miðvikudaginn 14. október, og verður þá appelsínugul viðvörun í gildi. Við munum fylgjast grannt með þróun mála og starfa samkvæmt óveðursáætlun skólans .
Við gerum ráð fyrir að margir verði á faraldsfæti vegna haustfrísins og höfum þegar orðið vör við að ferðaáætlanir eru að breytast með tilliti til veðurspárinnar. Við biðjum því foreldra og forráðamenn að láta skólann vita ef nemandi kemur ekki í skólann á morgun vegna breyttra áætlana eða veðurs. 

Einnig viljum við biðja þá foreldra sem hafa tök á því að sækja börn sín fyrr úr dægradvöl á morgun að láta okkur vita. Markmið okkar er að vera á undan veðrinu og tryggja öryggi barna og starfsfólks eftir fremsta megni.