Heimsókn frá Alþingi
Verðandi framtíðar leiðtogar í 9.-10. bekk
Miðvikudaginn 15. apríl fengu nemendur í 9. og 10. bekk skólans heimsókn frá fræðslustjóra Alþingis þar sem þeir voru fræddir um störf þingsins ásamt húsakynnum þess.
Eftir kynninguna var nemendum skipt í þingflokka og sem leggja fram frumvarp og þeir læra hvernig frumvarp fer í gegnum þingið. Lagt fram frumvarp um kattahald. Nemendur sátu þingflokksfundi, nefndarfundi og tóku til máls í ræðustól. Að lokum voru svo greidd atkvæði um hvort frumvarpið yrði að lögum eða ekki. Frumvarpinu var hafnað með einu atkvæði.

