Hjóladagur
Foreldrafélag grunnskólans með skemmtilegan viðburð
Foreldrafélag grunnskólans skipulagði vel heppnaða hjólastund núna í morgun. Tyler frá hjólaversluninni The Fjord Hub var með ástandsskoðun á reiðhjólum nemenda og starfsmanna skólans. Samfélagslögreglan kom í heimsókn og fór yfir reiðhjól nemendanna og gáfu límmiða því til staðfestingar að hjólið stóðst skoðun og hjálmar voru á höfði. Foreldrafélagið hafði sett upp hjólabraut svo það var margt um að vera á skólalóðinni.
Hjóladagurinn tókst frábærlega og má segja að allir hafi verið kátir og glaðir í lok hans. Lögreglan hrósaði framtaki og skipulagi foreldrafélagsins sérstaklega sem auðvelt er að taka undir.
Þarna nýtti froeldrafélagið sinn vettvang innan skólans og fékk aðila úr okkar nærsamfélagi að koma að viðburði. Foreldrafélög eiga meðal annars að styðja við skólastarfið og stuðla að velferða nemenda sem svo sammarlega var gert í dag.







