Íþróttahátíð unglingastigs

6.10.2026

  • Logo
haldin 8. október

Fimmtudaginn 8. október verður hin árlega íþróttahátíð unglingastigs haldin í íþróttahúsinu í Bolungarvík. Keppni hefst kl. 09:00 og stendur fram eftir degi þar sem nemendur takast á við fjölbreyttar íþróttagreinar.

Skólastarf yngsta- og miðstigs verður með hefðbundnum hætti 8. október. Að loknum skóladegi eru nemendur yngsta- og miðstigs velkomnir að koma og fylgjast með hátíðinni í fylgd foreldris eða forráðamanns. Ef nemendur verða ekki í fylgd verður þeim vísað út úr íþróttahúsinu.

Íþróttahátíðin á sér áralanga og sterka hefð í skólastarfinu og hefur um árabil verið einn af stærstu viðburðum skólaársins. Grunnskóli Bolungarvíkur hefur um árabil staðið að þessum vinsæla viðburði sem sameinar íþróttir, félagsfærni og gleði.  Á hátíðinni koma saman nemendur af unglingastigi frá grunnskólum víðs vegar af Vestfjörðum og er þeim skipt í blönduð lið þar sem lögð er áhersla á þátttöku, samvinnu, ný kynni og góða skemmtun. Keppt er í fjölbreyttum greinum, meðal annars boltaíþróttum, skák, spurningakeppni og fleiri greinum. 

Nemendur á unglingastigi verða með sjoppu í íþróttahúsinu sem lið í fjáröflun fyrir skólaferðalag sitt vorið 2028. Við hvetjum gesti til að líta við, njóta stemningarinnar og styrkja um leið framtak nemenda.

Að lokinni keppni verður síðan haldinn dansleikur fyrir nemendur á unglingastigi á sal skólans. Þar mun hljómsveitin Óðríki sjá um að skapa góða stemningu og stendur dansleikurinn frá kl. 20:00 til 22:30.

Við í skólanum erum spennt og hlökkum til skemmtilegrar íþróttahátíðar, góðrar samveru og líflegs dags þar sem íþróttagleði, samvinna og jákvæður andi verða í forgrunni.

Í aðdraganda hátíðarinnar hafa nemendur unglingastigs einnig skorað á starfsmenn skólans í nokkrum íþróttagreinum. Sú keppni fer fram miðvikudaginn 7. október og ríkir mikil eftirvænting meðal þátttakenda. Kennarar skólans eiga titil að verja frá fyrri árum og því er ljóst að er um spennandi og skemmtilegar viðureignir að ræða.