Kveðja fráfarandi skólastjóra

30.6.2026

  • GrBolStjorar-5

Halldóra Dagný kveður Grunnskóla Bolungarvíkur

Í tilefni starfsloka sinna skrifaði hún kveðju sem birt var á samfeálgsmiðlasíðu Foreldrafélags skólans þann 29. júní, við gefum Halldóru orðið: 

Kæru foreldrar. 

Í dag fer ég í sumarfrí og kveð Grunnskóla Bolungarvíkur eftir 29 ógleymanleg ár. Það er ótrúlegt að líta til baka og sjá hversu stór hluti af lífi mínu hefur verið bundinn þessum skóla – fyrst sem kennari og síðustu sem stjórnandi.Ég vil þakka ykkur öllum fyrir traustið, stuðninginn, hlýjuna og góða samstarfið í gegnum árin. Ég kveð með stolti yfir því sem okkur hefur tekist að byggja upp saman og því sem ég hef fengið að leggja af mörkum. Ég veit að skólinn er í góðum höndum.

Þó að það sé söknuður í hjarta mínu er líka tilhlökkun. Ég hef störf við Menntaskólann á Ísafirði í haust og hlakka til að fá að vinna áfram með bolvískum unglingum.Takk fyrir allt.Ég óska ykkur og skólasamfélaginu öllu innilega alls hins besta um ókomin ár.

Kær kveðja, Halldóra Dagný

Fyrir næsta skólaár hefur verið gengið frá ráðningu Guðbjargar Stefaníu Hafþórsdóttur sem skólastjóra og mun Helga Jónsdóttir koma aftur til starfa eftir námsleyfi og gegna stöðu deildarstjóra stoðþjónustu.