Litla upplestrarhátíð 4. bekkjar

25.3.2026

  • Upplestrarhatid

sem sprengdi skalann!

Nemendur 4. bekkjar stigu margir hverjir út fyrir þægindarammann og fengu góða þjálfun að koma fram á Litlu upplestrarhátíðinni sem þeir tóku þátt í þriðjudaginn 24. mars. Nemendurnir lásu um selinn Snorra, fóru með málshætti, lásu ljóð ásamt því að segja andheiti ýmissa orða. Litla upplestrarhátíðin byggir á sömu hugmyndafræði og stóra upplestrarkeppnin þar sem ávallt er haft að leiðarljósi að keppa að betri árangri í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu. Lögð er áhersla á virðingu og vandvirkni, allir nemendur eru með í liðinu, allir koma fram og fá viðurkenningarskjal í lokin. Foreldrum og aðstandendum var boðið á hátíðina sem endaði með góðu pálínuboði í skólastofu bekkjarins. 

4. bekkur lét ekki staðar numið að halda frábæra upplestrarhátíð heldur stóðu þau einnig uppi sem sigurvegarar í læsisátakinu "Sprengjum skalann!" sem var haldið 2.-19. mars. Þá daga sem "Sprengjum skalann" stóð yfir las bekkurinn í samtals 8576 mínútur sem gera tæpar 16 klukkustundir á mann að meðaltali, frábær árangur það. 

SprengjumSkalann-