Ljóð sem tengja skóla og samfélag

26.11.2026

  • Bb505e00-ccd0-4197-b67a-7e7231437600

Námið fór út fyrir veggi skólans

Í læsislotu haustsins fengust nemendur í 10. bekk við ljóð frá ólíkum tímabilum íslenskrar bókmenntasögu. Í verkefninu unnu þeir í hópum að því að greina og túlka þrjú ljóð, skoða bókmenntaleg einkenni þeirra og bera saman. Afraksturinn var settur fram á veggspjöldum sem nú prýða veggi bekkjarstofu nemendanna.

Sem hluta af verkefninu völdu nemendur eitt af þeim þremur ljóðum sem þeir höfðu unnið með og undirbjuggu flutning þess. Á degi íslenskrar tungu fluttu þeir ljóðin fyrir samnemendur og starfsfólk skólans með fjölbreyttum hætti þar sem túlkun, framkoma og tjáning fengu að njóta sín. Síðastliðinni sunnudag gafst þeim tækifæri til að flytja ljóðið á samkomu Kvenfélagsins Brautarinnar í Safnaðarheimili Bolungarvíkur. Þar fengu nemendur tækifæri til að miðla afrakstri náms síns til heimafólks og sýna hvernig vinna með bókmenntir, túlkun og tjáningu getur lifnað við utan skólastofunnar. Með þátttöku af þessu tagi verða tengsl náms og samfélags áþreifanleg og nemendur fá að upplifa að þekking þeirra og framlag skipti máli.

Verkefnið fellur vel að markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla um læsi, tjáningu, menningarvitund og virka þátttöku í samfélaginu. Jafnframt endurspeglar það áherslur Menntastefnu Bolungarvíkurkaupstaðar um öflugt samstarf skóla og samfélags, þar sem námið fer ekki eingöngu fram innan veggja skólans heldur einnig í nærsamfélaginu. Þannig verða heimafólk, félagasamtök og menningarlíf sveitarfélagsins mikilvægir þátttakendur í menntun nemenda.

Við þökkum Kvenfélaginu Brautinni fyrir hlýlegar móttökur og nemendum fyrir framkomu sem þeir mega sannarlega vera stoltir af.

66f5e9b1-6a13-4fb3-800e-1c4a80d46758

0ac15271-e2a0-4204-be2d-ae4f306bf32620261124_111646

20261124_11165120261124_11171120261124_111657