Lokahátíð Stóru Upplestrarkeppninnar
Fulltrúar í 7. bekk frá Grunnskólum Bolungarvíkur, Ísafjarðar og Þingeyri tóku þátt
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á norðanverðum Vestfjörðum fór fram í Félagsheimili Bolungarvíkur í gær, þriðjudaginn 7. apríl. Í henni tóku þátt 10 nemendur úr grunnskólunum á svæðinu. Nemendur lásu upp úr bókinni Birtingur og símabannið mikla eftir Gunnar Helgason, ljóð eftir Vilborgu Dagbjartasdóttur og ljóð að eigin vali.
Keppnin var mjög spennandi og nemendurnir stóðu sig allir með stakri prýði. Það var því erfitt verkefni sem dómarar keppninnar stóðu frammi fyrir. Niðurstaðan varð þó sú að í fyrsta sæti varð Aino Magnea Norðdahl Widell, í öðru sæti var Guðrún Eva Þorvaldsdóttir og í þriðja sæti Eiríkur Bjarkar Jónþórsson frá Grunnskólanum á Ísafirði.
Upplesararnir fengu allir viðurkenningarskjal og rós, en keppendur í verðlaunasætum fengu auk þess gjafir frá Pennanum/Eymundsson og Landsbankanum.
Við óskum öllum lesurum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu.
Fulltrúar Grunnskóla Bolungarvíkur voru þau Sigurrós Freyja Birgisdóttir og Þórður Elías Sigtryggsson


Efstu þrjú sætin


