Menntaþing Vestfjarða
Fulltrúar Grunnskóla Bolungarvíkur voru með málstofu
Starfsfólk Grunnskóla Bolungarvík sóttu Menntaþing Vestfjarða mánudaginn 8. júní sem haldið var í Edinborgarhúsínu á Ísafirði.
Á Menntaþingi Vestfjarða komu saman fólk úr skólasamfélaginu, fagfólk, stjórnendur og áhugasamir til að ræða áskoranir, tækifæri og framtíðarsýn menntunar í fjórðungnum. Markmið þingsins var að setja menntun á dagskrá á Vestfjörðum, vekja athygli á því sem vel er gert og skapa vettvang fyrir samtal og samvinnu þvert á öll menntastig, frá leikskóla til háskóla.
Fulltrúar Grunnskóla Bolungarvíkur voru með erindi í málstofu á þinginu en þar sagði Halldóra Dagný frá þeim samstarfsverkefnum sem skólinn hefur tekið þátt í innan og utan landsteinanna. Guðrún Guðfinnsdóttir tók síðan við og sagði frá samstarfsverkefni skólans við ProBleu og Háskólasetur Vestfjarða, HOBB - Hafið okkar, blá Bolungarvík.




