Nám, leikur og stafasúpa undir berum himni
Vel heppnað útinám markar upphaf læsislotu
Á Mölum er rík áhersla á útinám. Á þriðjudag var milt og gott veður eftir veðurviðvaranir og rigningar síðustu daga og fengu nemendurnir að njóta skemmtilegs og lærdómsríku útinámi þar sem stafasúpa var elduð yfir opnum eldi. Hópurinn fór með vagninn sem notaður er meðal annars í útinám í Bernódusarlund þar sem kveiktur var eldur og súpa hituð í potti á hlóðum.
Verkefnið bauð upp á fjölbreytt nám, reynslu og tækifæri þar sem nemendur fengu meðal annars að taka þátt í undirbúningi máltíðarinnar með því að skera kjötbollur í súpuna og hræra í pottinum. Um leið gafst tækifæri til að ræða og æfa örugga umgengni við eld, ábyrgð og samstarf, sem eru mikilvægir þættir í útinámi.
Þegar kom að því að gæða sér á súpunni voru nemendur hvattir til að skoða hvaða bókstafir leyndust í skálunum þeirra og hvaða hljóð þeir mynduðu. Þá mynduðust fjölmargar skemmtilegar umræður og vangaveltur um tungumál, hljóð og orð, þar sem leikur og nám runnu saman í eitt.
Útinám fellur vel að áherslum Menntastefnu Bolungarvíkur, þar sem lögð er áhersla á persónumiðað nám sem tekur mið af áhuga, styrkleikum og þroska barna, auk þess að stuðla að vellíðan og skapandi námsumhverfi. Einnig er lögð áhersla á að nemendur takist á við raunveruleg viðfangsefni sem tengjast daglegu lífi og samfélagi. Við í Grunnskóla Bolungarvíkur leggjum áherslu á fjölbreytta kennsluhætti, skapandi nám og að nýta þá einstöku náttúru sem umlykur skólann sem vettvang til náms. Útinám af þessu tagi eflir ekki aðeins læsi og málvitund heldur einnig sjálfstæði, samvinnu, umhverfisvitund og virðingu fyrir náttúrunni.
Það var sérstaklega við hæfi að njóta stafasúpu og velta fyrir sér bókstöfum og hljóðum nú þegar læsislota er að hefjast í skólanum. Nemendur fengu því bæði næringu fyrir kroppinn og hugann í þessari notalegu hauststund í Bernódusarlundi.



