Náms- og starfsráðgjafi
hefur hafið störf við skólann
Hildur Vilhjálmsdóttir, starf- og námsráðgjafi, hefur hafið störf við skólann. Hildur mun sinna einstaklings ráðgjöf, hóptímum og fræðslu ásamt því að fara yfir samþættingu, teymisvinnu og veita foreldrum og kennurum stuðning. Til þess að byrja með mun hún veita nemendum 10. bekkjar persónulega og einstaklingsmiðaða ráðgjöf. Þriðjudagar verða viðtalsdagar Hildar í skólanum.
Hægt er að afla sér upplýsinga um hlutverk náms- og starfsráðgjafa á heimasíðu Félags náms- og starfsráðgjafa.

