Nemendur á Mölum láta til sín taka

20.5.2025

  • Malir_vagn

Okkur er umhugað um umhverfið

Á Mölum er rík áhersla lögð á útinám og fléttast þar inn nokkur Heimsmarkmið t.a.m. sjálfbærni þar sem endurvinnsla fellur undir. Nemendum er kennt að vera umhugað um umhverfi sitt, týna upp það rusl og flöskur sem þeir sjá í nærumhverfi sínu.

Síðustu tvö skólaár hafa nemendur á Mölum safnað flöskum sem þeir hafa fundið úti í nærumhverfinu. Markmiðið við að skila inn flöskum til endurvinnslu var að safna fyrir vagni sem hentar fyrir margs konar útivist og að ferja ýmislegt sem notað er í útikennslu.

Nú í vor var markmiðinu náð og vagninn keyptur. Það voru stoltir nemendur og starfsmenn sem skoðuðu vagninn þegar hann kom með póstinum.

Nemendur og starfsmenn á Mölum hafa sett sér  þ.e. að geta farið í ísferð fyrir skólalok, skemmtilegt markmið það.