Nemendur fóru til Evrópu
Grunnskólinn í Bolungarvík hefur undanfarin tvö ár tekið þátt í Evrópusamstarfi á vegum Erasmus+.
Verkefnið „Let´s talk about Europe“. Verkefnið var bæði kennara- og nemendaverkefni og unnið með kennurum og nemendum frá Ítalíu, Lúxemborg, Þýskalandi og Íslandi. Dagana 31.mars – 7. apríl sl. var síðasta nemendaferð verkefnisins.
Þau Alexandra, Íris, Kjartan og Jón Karl nemendur úr 10. – og 9. bekk grunnskólans fóru til Lúxemborg ásamt kennurum námsefnins.
Verkefnið „ Let´s talk about Europe“ hafði það meginþema að búa til námsefni og prufukenna námsefnið til að fræða ungt fólk um Evrópu og málefni sem snerta Evrópu. Í námsefninu sem samið var af íslensku kennurunum frá Bolungarvík var áhersla lögð á annars vegar „Blue Planet“ (vatnsnotkun og umhverfismál) og hinsvegar um „United in Europe“ (sameinuð í ólíkri; menningu, trú og gildum).
Í ferðinni til Lúxemborg unnu nemendur allskyns ólík verkefni í nokkrum hópum með nemendum frá öðrum löndum. Einnig var farið til Brussel í Belgíu og farið í höfuðstöðvar Evrópusambandsins. Þar fengu nemendur að fara um húsnæðið með leiðsögumanni og funda með meðlim úr Evrópuþinginu og borða í mötuneyti sambandsins. Einnig fengu gestirnir að fara í áheyrendasal á svölum Evrópusambandsþingsins og hlusta á umræður sem þar fóru fram, þá voru umræður um Brexit að eiga sér stað.
Nemendur gistu í heimahúsum hjá nemendum frá Lúxemborg. Verkefnið var fjármagnað af Evrópusambandinu.