Nemendur kenna nemendum
12.10.2021
Nemendur í 6. bekk hafa verið að gera stærðfræðispil um námundun og stórar tölur á liðnum vikum. Þegar spilin voru tilbúin fengu þau að kenna fjórðubekkingum á spilin. Skemmtilegar umræður sköpuðust á meðan spilað var.